Orkumálinn 2024

Opið bréf til Sir Jim Ratcliffe

Sir Jim Ratcliffe, við höfum ekki hist, en ég er búsettur á norðausturströnd Íslands, þar sem þú hefur beint fjárfestingum þínum í stórum mæli undanfarið. Þú ert einn af efnameiri mönnum veraldar. Þú tilheyrir þeim litla minnihluta íbúa þessarar jarðar sem fer með forræði meirihluta eignanna og auðlinda.

Undanfarið hefur þú keypt þig inn í um 40 bújarðir á norðausturströnd Íslands sem teygja sig yfir um 1,5% af flatarmáli alls Íslands frá ströndu og langt upp á hálendi Íslands. Með þessu hefurðu væntanlega náð því markmiði þínu að hljóta yfirráð í veiðifélögum nokkurra af eftirsóknarverðari laxveiðiám á norðurhveli jarðar. Af fréttum að dæma virðist þú drifinn áfram af náttúruverndarsjónarmiðum, með verndun og viðhald norður-Atlandshafslaxins að meginmarkmiði. Það er einmitt ástæðan fyrir því að mig langar að bera upp við þig hugmynd.

Hvað fylgir í kaupunum?

Vandinn er nefnilega sá að þú keyptir ekki bara yfirráð veiðiánna með fjárfestingum þínum heldur gríðarlega stór landsvæði og aðrar eignir með. Með laxveiðiréttinum, sem þú hefur keypt, hefur þú eignast mikinn fjölda landbúnaðarjarða í heild sinni með ótal fasteignum af öllu tagi. Íbúðarhús, útihús og atvinnuhúsnæði alls konar. Líka ræktunarland sem íslenskir bændur hafa viðhaldið í fjölskyldueign um aldir. Ekki síst líka óraskaða íslenska náttúru, heiðarlönd og hálendi, mýrar og mela, svo skiptir tugum þúsunda hektara. Þessar eignir, sem ekki tengjast laxveiðinni með beinum hætti, eru nú ýmist mannlausar, sumarhús eða í höndum leiguliða á þínum vegum. Þegar eignarhald og umráð atvinnutækjanna og jarðnæðis er farið úr höndum fólksins og sveitanna sjálfra dregur heldur úr hvata fyrir ungt og bjartsýnt fólk til að setjast að með hugmyndir sínar og framtak til búsetu á þessum jörðum.

Tillögur til þín:
Hér er hugmynd fyrir þig: Viltu ekki skila íslensku þjóðinni og heimafólki sem býr á þessari norðausturströnd Íslands þeim hluta af því sem þú hefur keypt og munt aldrei hafa nein sýnileg not fyrir? Hér eru þrjár tillögur fyrir þig:

(1) Afsalaðu þér vannýttum eignum
Afsalaðu þér öllum fasteignum, landbúnaðarlandi og landflæmi í byggð sem ekki tengist með beinum hætti laxveiðinni. Afhentu þetta allt strax til fullrar eignar og ráðstöfunar sveitarfélaga við Norðausturströndina, sem geta selt eða gefið eignirnar áfram framtaksömu fólki til búsetu.

(2) Legðu hálendi og heiðarlönd undir þjóðgarð
Afhentu hálendishluta landflæmis þíns íslensku þjóðinni til umsýslu í þjóðgarðinum sem einmitt er starfræktur í næsta nágrenni (Vatnajökulsþjóðgarði). Þú getur átt hlutdeild í stofnun Hálendisþjóðgarðs líka, ef þú kærir þig um. Verndun búsvæðis og upptökusvæða vatnslinda laxveiðiánna geta hæglega orðið að einu vendarmarkmiðanna.

(3) Skilaðu eignum og veiðirétti til komandi kynslóða framtíðar
Færðu veiðiréttinn á ný í hendur heimamanna, t.d. sveitarfélaganna, að loknum einhverjum árum eða áratugum, þegar þú telur þig hafa náð verndarmarkmiðum þínum. Hafðu bara ríkulega skilmála sem tryggja vernd og viðhald lífríkis veiðiánna sem þér standa svo nærri. Það munu allir hagnast á því hvort eð er.

Sjálfbær byggð og náttúra

Eins og margir Íslendingar hef ég farið töluvert um þessar lendur þínar. Ekið og gengið og meira að segja veitt í sumum þessara áa sem þú stýrir. Ekkert okkar er eilíft. Þessar íslensku sveitir verða til eftir minn dag og þinn dag líka, Sir Ratcliffe. Vonandi laxinn í ánum líka. Ef raunverulegur vilji þinn er verndun náttúrunnar þá verður því best við komið með öflugri og sjálfbærri byggð við búsvæði laxveiðiánna og sátt við fólkið í landinu. Byggð sem getur horft til framtíðar og alið af sér áfram nýtt fólk sem sér ný tækifæri til búsetu á þessum dreifbýlu svæðum. Jarðnæði er í eðli sínu takmörkuð auðlind. Eftirspurn fjárfesta, sama hve ríkuleg hún er, eykur ekki framboðið. Landið er eitt og hið sama. Takmörk á eignarhaldi einstaklinga á landi og sameiginlegum auðlindum munu líka aukast eins og stefna íslenskra stjórnvalda hefur sýnt nýverið.

Að stóreignafólk eins og þú Sir Ratcliffe, sýni ríkulega samfélagslega ábyrgð er ekki einvörðungu sjálfsögð krafa byggðar og lands. Slíkt er beinlínis lang hagfelldasta leiðin og skynsamlegasta fyrir þín eigin áform, sem eru eftir því sem kynnt hefur verið, ekki önnur en verndun búsvæða Norður-Atlandshafslaxins við Íslands strendur og þar með sjálfbær þróun íslenskrar náttúru almennt.

Í öllu falli er það aldrei vænleg framvinda þegar uppkaup einstaklinga einnar þjóðar á auðlindum og landi annarrar verði til þess að draga úr tækifærum til að móta framtíð sinnar byggðar.

Höfundur er íbúi á Húsavík og hefur undanfarin ár komið að pólitískum störfum í sveitarstjórnarmálum og landsmálum fyrir VG.


Nokkrar heimildir:
https://www.ruv.is/kveikur/thetta-eru-jardirnar-sem-ratcliffe-hefur-keypt/
https://www.althingi.is/altext/stjt/2020.085.html
https://www.undercurrentnews.com/2019/08/14/british-billionaire-to-fund-icelandic-wild-salmon-research/
https://www.ineos.com/inch-magazine/articles/issue-14/jims-stream-of-consciousness/
https://sixrivers.is/en/news/news-is-new/
https://flylifemagazine.com/british-billionaire-buys-land-in-iceland-to-protect-salmon/

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.