Snjóflóðaeftirlitsmenn fylgjast grannt með

Snjóflóðaeftirlitsmenn fylgjast grannt með snjóalögum í Norðfirði og á Seyðisfirði. Fjögur snjóflóð hafa fallið í Norðfirði og tvö í Seyðisfirði á síðasta sólarhring rúmum. Engin hætta er á ferðum og um venjubundið eftirlit að ræða, þó ástæða þyki til að herða eftirlit ef bætir í úrkomu á þessum svæðum.

snjr.jpg

Tveir snjóflóðaeftirlitsmenn úr Reykjavík eru í dag og á morgun við rannsóknir og æfingar ásamt austfiskum eftirlitsmönnum á Austurlandi og var dagsetning þeirra athugana löngu ákveðin. ,,Það vildi svo vel, nú eða illa til, að hér í Norðfirði féllu nokkur snjóflóð sem við gátum skoðað saman", segir Kristín Ágústsdóttir, landfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands í Neskaupstað.

 

Hún segir engar áhyggjur vera af snjóflóðahættu í Norðfirði. Uppi sé svokallað hættuástand gulur, sem þýði að snjóflóð geta fallið og þau farið af stað af mannavöldum utan byggðar en ekki talin hætta á flóðum í þéttbýli. ,,Þetta er alnormalt ástand" segir Kristín. Eitt flóðanna í Norðfirði féll úr Bakkagili, tvö í Hátúni á veginn yfir Oddsskarð og eitt úr Grænafelli á Fagradal. Flóðin eru öll heldur óveruleg. Kristín segir að alltaf sé fylgst grannt með á þessum tíma, meðal annars mæld snjódýpt og teknar gryfjur til að taka ástandið.

Emil Tómasson er snjóflóðaeftirlitsmaður á Seyðisfirði. Hann segir ástandið býsna stöðugt en þó hafi fallið tvö flóð út með strönd Seyðisfjarðar í gær, annað nokkuð myndarlegt. ,,Snjóalög eru stöðug, sérstaklega norðanvert í firðinum og í Stafdal. Allt er í góðu lagi í Bjólfinum, enda ekki sest það mikið í hann af snjó," segir Emil. Bæti í úrkomu þurfi þó að fylgjast enn betur með. Nú er verið að gera vikulegar mælingar en gæti þurft að gera þær daglega hvað úr hverju.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar