Uppbygging í Múlaþingi
Uppbygging í Múlaþingi þá aðallega á miðsvæði þess hefur verið mikið hampað af bæjarfulltrúum meirihlutans undanfarin misseri. Það er líka ástæða til þess fyrir þá sem fara með stjórn sveitarfélagsins.
Það er alltaf ánægjulegt þegar vöxtur er sérstaklega þegar talað er um hinar dreifðu byggðir. Múlaþing samanstendur af fjórum þéttbýliskjörnum og víðfeðmu dreifbýli. Staða þéttbýliskjarnana er misjöfn hvað varðar uppbyggingu atvinnu og hvar er þörf á styrkingu innviða svo sem byggingu húsnæðis. Það hafa heyrst þau rök að pólitíkin stjórni ekki hvar sé byggt eða hverjir fari af stað með byggingu íbúðarhúsnæðis.
Djúpivogur er sennilega það þéttbýli í Múlaþing og þó víðar væri leitað þar sem uppbygging atvinnu er mest og því mikill þörf á því að pólitíkin fylgi eftir innviðauppbyggingu og sé hvetjandi hvað varðar uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þrátt fyrir að húsnæðisskortur standi í vegi fyrir uppbyggingu og vexti Djúpavogs heyrist hvorki hósti né stuna frá pólitískum leiðtogum Múlaþings. Á Djúpavogi er ekki ein einasta íbúð í smíðum og þar hefur ekki verið byggt íbúðarhúsnæði í nokkur ár.
Fyrir um tveimur árum fóru pólitískir leiðtogar Djúpavogs mikinn og þegar byggja átti fimm íbúða raðhús í svokölluðu Markarlandi. Mikið var haft fyrir því að taka fyrstu skóflustunguna, enda kosningar framundan. Síðan þá hafa grunnarnir staðið óhreyfðir ásamt moldarhrúgum okkur íbúunum til augnayndis. Bygging íbúðarhúsnæðis og innviða samfélagsins er algjör forsenda til að öflugir fjárfestar komi að frekari atvinnuuppbyggingu á Djúpavogi.
Þó svo að færa megi rök fyrir því að sveitarfélagið eigi ekki sjálft að standa í íbúðabyggingum, þá er það alveg klárt að hinir pólitísku leiðtogar Múlaþings verða að taka frumkvæði hvað varðar að koma byggingu íbúðarhúsnæðis af stað, það er þeirra hlutverk meðal annars. Mikill vöxtur er hjá Fiskeldi sem kallar á að sveitarfélagið sé með í uppbyggingu innviða.
Það er mín sýn að sú sveitarstjórn sem er búin að sitja síðan af sameining varð sé í raun ekki með á nótunum, enda virðist áhugasvið kjörinna fulltrúa Múlaþings vera á öðrum svæðum en Djúpavogi.
Höfundur er íbúi á Djúpavogi.