VHE vantar starfsmenn

Guðgeir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri VHE á Reyðarfirði, segir fyrirtækið vanta smiði á Egilsstöðum og vélvirkja til starfa á Reyðarfirði. Mannaflaþörfin hafi meðal annars verið leyst með erlendum starfsmönnum.

 

ImageVélsmiðjan undirritaði í vikunni formlega samninga við Vatnajökulsþjóðgarð um byggingu gestastofu á Skriðuklaustri. Fyrirtækið hefur þjónustað álverið í Reyðarfirði og tók við byggingu Egilsstaðaskóla í vetur.

Guðgeir segir byggingu gestastofunnar skjóta frekari stoðum undir starfsemi fyrirtækisins á Austurlandi. Hann gerir ráð fyrir að 10-15 smiðir á vegum VHE vinni að byggingunni. Flestir þeirra séu þegar til staðar en nokkur störf séu laus og verði auglýst. „Okkur vantar 4-5 smiði,“ segir hann. „Okkur hefur gengið illa að fá smiði í sumar á Egilsstöðum. Á Reyðarfirði vantar okkur vélvirkja, vélsmiði og rafvirkja. Við höfum meðal leyst þetta með erlendum starfsmönnum,“ segir hann.

Hann segir verkefnastöðu víða hafa verið góða í sumar en staðan gæti breyst með haustinu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar