Ýmislegt um rafrettur
Í janúar sameinuðust sveitarfélögin Fljótsdalshérað, Fjarðabyggð og Seyðisfjarðarkaupstaður um fræðslu um rafrettur, mögulega skaðsemi þeirra og útbreiðslu. Það var Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MA nemi í heilbrigðisvísindum, sem sá um að fræða bæði unglinga í grunnskólum sveitarfélaganna, ungmenni í Menntaskólanum á Egilsstöðum og foreldra/forráðafólk í sveitarfélögunum þremur.Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um rafsígarettur (rafrettur/vape/veip) á síðustu misserum. Augljóst er að skoðanir fólks á þeim eru mismunandi. Einhverjir halda fram algjöru skaðleysi rafrettanna, vökvans og gufunnar sem notendur anda að sér. Á meðan aðrir vísa í rannsóknir sem benda til skaðsemi rafrettunotkunar. Það er ljóst að langt er í að óyggjandi niðurstöður verði til um skaðsemi rafsígarettanna, en það sem er vitað er er meðal annars eftirfarandi:
- Um 1/3 unglinga í elstu bekkjum grunnskóla á Íslandi hafa prófað rafrettur.
- Notkun rafretta hefur stóraukist á síðustu tveimur árum og fjölmörg ungmenni byrja að nota rafrettur án þess að hafa nokkurn tíman reykt.
- Gufa frá rafrettunum getur angrað, burtséð frá magni nikótíns í vökvanum.
- Stærstur hluti rafrettuvökva inniheldur nikótín en nikótín er afar ávanabindandi.
- Rafrettuvökvi inniheldur yfirleitt krabbameinsvaldandi efni, t.d. própýlenglýkól.
- Rafrettur eru gjarnan auglýstar sem skaðlausar, töff og hægt að nota hvar sem er. Þá er markaðssetningu gjarnan beint að ungu fólki, og jafnvel börnum, þar sem litrík tæki og vökvi með sælgætisbragði eru kynnt.
- Auglýsingar fyrir rafrettur og rafrettuvökva minnir óþægilega á auglýsingar fyrir sígarettur og tóbak fyrir nokkrum áratugum síðan.
- Skammtímarannsóknir sýna fram á slæm áhrif á lungu og öndunarfæri, auk nikótínáhrifa.
- Upp hafa komið tilfelli þar sem rafrettur springa í andlit fólks.
- Rafrettuvökvi hefur verið illa og/eða vitlaust merktur. Nikótín finnst í vökva sem átti að vera nikótínlaus og meira magn nikótíns en sagði á pakkningu.
- Notkun rafretta getur valdið nikótínfíkn, en nikótín hefur slæm áhrif á heilaþroska unglinga.
- Nikótín virðist geta örvað vöxt krabbameinsfruma þó það sé sjálft ekki krabbameinsvaldandi.
Við hvetjum einnig söluaðila rafretta og rafrettuvökva að virða aldurstakmark við sölu varningsins og að leyfa þannig unga fólkinu okkar að njóta vafans.
Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í Fjarðabyggð
Bylgja Borgþórsdóttir, verkefnastýra íþrótta-, tómstunda- og forvarnamála á Fljótsdalshéraði
Eva Jónudóttir, forvarnafulltrúi á Seyðisfirði
Mynd: Mohamed Hassan/Pixabay CC0Mohamed Hassan/Pixabay CC0