Hús handanna býður upp á matarkörfur úr austfirsku hráefni
Hús handanna býður eins og fyrir síðastliðin jól upp á að gera gjafakörfur með austfirskum matvælum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Meðal annars er hægt að fá sérbakað bygglaufabrauð frá Fellabakaríi.„Við bjóðum upp á nokkrar staðlaðar körfur en getum líka blandað saman eins og hver og einn vill," segir Kristjana Sigurðardóttir, verslunarstjóri Húss handanna, en gestum var boðið að kynna sér körfurnar í hádeginu í dag.
Þannig er hægt að fá körfur frá tilteknum framleiðanda, til dæmis Klausturkaffi, Vallanesi, Holti og heiðum eða Eik eða blandaða eftir máltíðum, til dæmis morgunverðar eða eftirréttakörfum.
Síðan er á boðstólnum stór karfa sem inniheldur meðal annars harðfisk frá Kalla Sveins á Borgarfirði og hangikjöt frá Möðrudal.
Hús handanna hefur boðið upp á matarkörfurnar frá stofnun árið 2010 og þær eru í stöðugri þróun. „Að þessu sinni erum við með sérbakað bygglaufabrögð frá Fellabakaríi og skyrköku frá Mjólkurstöðinni í Neskaupstað. Síðan er boðið upp á þurrkaða sveppi sem snakk," segir Kristjana.