Björt framtíð boðar bjartari morgna en Seyðfirðingar vilja bjartari kvöld
Forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði segir nýframkomna tillögu þingflokks Bjartrar framtíðar um að seinka klukkunni á Íslandi vera í þveröfuga átt við vilja Seyðfirðinga. Íbúar þar hafa um hríð barist fyrir því að klukkunni verði flýtt á sumrin þannig sólar njóti lengur við innan fjallahringsins seinni partinn.„Þessi tillaga er í þveröfuga átt við það sem við höfum verið að óska eftir. Við viljum sumartíma sem gengur út á að flýta klukkunni eins og víða er gert í heiminum.
Við hefðum þá lengri birtutíma fram á kvöldið á sumrin. Við sem erum með háu fjöllin gætum þá notið sólar til klukkan 19:30 yfir hásumarið,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Björt framtíð lagði í gær fram þingsályktunartillögu um að seinka klukkunni á Íslandi um eina klukkustund, allt árið. Í greinargerðinni er bent á að klukkan á Íslandi sé rangt skráð miðað við gang sólar.
Frá árinu 1968 hafi klukkan hér verið stillt á sumartíma allt árið. Það gefi landsmönnum bjartari kvöld á sumrin en styttri birtutíma á veturna þar sem menn vakni til að mæta í vinnu eða skóla þegar enn sé í raun nótt.
„Í stað þess að sól sé hæst á lofti um hádegisbil er sól á Íslandi hæst á lofti í Reykjavík að meðaltali kl. 13.28 og á Egilsstöðum hálftíma fyrr. Verði klukkunni varanlega seinkað um eina klukkustund, eins og tillaga þessi gerir ráð fyrir, yrði sól hæst á lofti í Reykjavík að jafnaði klukkan hálfeitt og á Egilsstöðum í kringum tólf eins og eðlilegt er,“ segir í greinargerð Bjartrar framtíðar.
Tillagan gengur því þvert á baráttu Seyðfirðinga. „Það þýddi að það myndi birta fyrr á morgnanna miðað við klukkuna og það myndi dimma fyrr á kvöldin. Sólin hjá okkur hér á Seyðisfirði væri horfin á bak við fjöllin 17:30 á besta tíma sumarsins ef þeirra tillaga næði fram að ganga,“ segir Arnbjörg og bætir við. „Við myndum seint geta samþykkt tillögu Bjartrar framtíðar.“