Brotist inn í nytjamarkað Rauða krossins
Brotist var inn í nytjamarkað Rauða Krossins á Egilsstöðum í síðustu helgi. Þeir sem brutust inn fóru inn um glugga á bakhlið hússins sem stendur í iðnaðarhverfi í bænum.Glugganum var í raun kippt úr og lá á jörðinni við hlið hússins þegar að var komið morguninn eftir. Teknir voru DVD diskar og tölvuleikir auk hálsmena, eyrnalokka og fleira smádóts.
Að auki var farið inn á svæði Íslenska gámafélagsins og stolið þaðan verkefni.
Innbrotin hafa verið kærð til lögreglu en sökudólgarnir eru enn ófundnir.