Níu stæður brotnar í línunni á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar
Að minnsta kosti stæður brotnuðu í rafmagnslínunni á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í nótt. Enginn notandi varð þó rafmagnslaus af þeim sökum.Háspennulína á milli Stuðla í Reyðarfirði og Eskifjarðar leysti út klukkan hálf fjögur í nótt. Við skoðun eftir hádegi í dag kom í ljós að minnsta kosti níu stæður hefðu brotnað í línunni.
Viðgerðarmenn eyddu deginum í að kanna hvort fleiri stæður hefðu skemmst vegna ísingar. Enginn notandi varð rafmagnslaus þótt línan dytti út.
Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði aðstoðaði í dag við flutning sjúklings yfir Fjarðarheiði í Egilsstaði. Snjóbíll sveitarinnar og snjóbíll af skíðasvæðinu í Stafdal voru notaðir til að grófmoka leiðina.
Vegagerðin kom á móti frá Egilsstöðum með snjóblásara og snjóplóg. Sjúklingurinn var fluttur yfir í jeppa björgunarsveitarinnar.
Mynd: Landsnet
Mynd: Landsnet