Loðnuskipin byrjuð að veiða fyrir norðan land

eskifjordur eskjaLoðnuvertíðin er hafin en nokkur skip köstuðu nót í gær en trollveiðar máttu hefjast á miðnætti. Þau eru samt að þreifa fyrir sér með veiðistaði.

Aðalsteinn Jónsson er kominn með 170 tonn um borð eftir fyrsta hol. Skipið er að veiðum um 50 sjómílur norður af Grímsey.

„Það gekk sæmilega. Þeir telja samt mun betri lóðningar í suðurlínu og að talsvert magn sé þar á ferðinni. Þeir mega samt ekki fara þangað enn," sagði Þorsteinn Kristjánsson í samtali við Austurfrétt í morgun.

Óvíst er hvenær skipið kemur að landi en aflinn verður frystur um borð. Þess er beðið að Árni Friðriksson, skip Hafrannsóknastofnunar, leggi úr höfn til að leita að loðnu.

Skip Síldarvinnslunnar eru einnig mætt til veiða. Börkur NK fékk 250 tonn í fyrsta holi norður af Melrakkasléttu. Birtingur sótti loðnunótina í gær og fer til veiða á næstu dögum.

Skip HB Granda, Ingunn og Faxi, eru einnig af veiðum á sama svæði.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar