Flúormengun frá álverinu: Hætta á skemmdum í fé frá Sléttu
Hætta er á skemmdum af völdum flúormengunar frá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í kindum í firðinum. Talsmenn fyrirtækisins segja að verið sé að leita leiða til að koma í veg fyrir mengunina.Náið er fylgst með þróun flúors í Reyðarfirði eftir mengunarslys sumarið 2006 en efnið getur haft skaðleg áhrif á grasbíta. Þannig er fylgst með bæði hestum og kindum í firðinum.
Við mælingar á sláturfé frá bæjunum Sléttu og Þernunesi í haust kom fram „tiltölulega hátt flúorinnihald" í fullorðnum kindum frá Þernunesi og „tiltölulega hátt" innihald í bæði ungu og gömlu fé frá Sléttu.
Í skýrslu Tilraunastöðvar landbúnaðarins, sem annaðist mælingarnar, kemur fram að niðurstöðurnar gefi til kynna að „hætta er á flúorskemmdum í fé frá Sléttu."
Innihaldið er meira en í fyrra en það gæti skýrst af því að kindurnar sem skoðaðar voru í sláturhúsi voru eldri.
Lifandi dýr eru einnig sjónskoðuð en við þær skoðanir hafa ekki sést breytingar á tönnum eða kjálkabeinum sem benda til flúormengunar. Í ráðleggingum dýralæknis kemur þó fram að betra sé að skoða dýr sem gangi á mesta hættusvæðinu frekar en taka slembiúrtak úr stofninum.
Bændur á svæðinu hafa lýst yfir áhyggjum af þróuninni. Í tilkynningu frá Fjarðaáli er því lýst yfir að unnið sé með bændum á svæðinu og eftirlitsstofnunum að því að rannsaka og fylgjast með þróuninni og finna lausnir á vandanum.
„Gildin eru nokkuð hærri en við hefðum kosið að sjá en þó innan hættumarka," segir í yfirlýsingunni. „Alcoa Fjarðaál er eitt tæknilega fullkomnasta álver heims og notar aðeins besta tæknibúnað sem völ er á til að lágmarka umhverfisáhrif vegna starfseminnar.
Að því markmiði vinnum við með sérfræðingum fyrirtækisins enda leitar Alcoa stöðugt nýrra tækifæra til að draga enn meira úr neikvæðum áhrifum starfseminnar."