Fjórir í gæsluvarðhald eftir fíkniefnasmygl með Norrænu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði fyrir viku mikið magn fíkniefna sem falin voru í bifreið sem kom til landsins með Norrænu fyrir tæpum tveimur vikum.Fjórir einstaklingar, tveir Íslendingar og tveir Hollendingar, voru handteknir við rannsóknina og úrskurðaðir í gæsluvarðhald, þrír þeirra í tvær vikur og einn í viku. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri.
Í tilkynningu lögreglunnar segir að málið sé umfangsmikið en ekki séð hægt að veita frekari upplýsingar um gang rannsóknarinnar að svo stöddu.
Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu í morgun og sagði að lagt hefði verið hald á tugi kílóa af sterkum efnum.
Fyrir mánuði fundu tollverðir á Seyðisfirði 80 kg af MDMA í bíl sem kom með Norrænu. Hollenskt par situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins.