Ákærður fyrir að stofna lífi vegfarenda og lögreglumanna í hættu með ofsaakstri
Ríkissaksóknari hefur ákært ríflega tvítugan karlmann fyrir að hafa stefnt lífi og heilsu vegfarenda og lögreglumanna í „augljósan háska á ófyrirleitinn hátt.“ Maðurinn ók undir áhrifum áfengis og reyndi að stinga lögregluna af á leiðinni upp Fagradal.Í ákærunni segir að maðurinn hafi „ítrekað“ ekið yfir á rangan vegarhelming og „í veg fyrri lögreglu“ sem reyndi að stöðva för hans. Á leiðinni mætti hann þremur bílum.
Atvikið átti sér stað í fyrrahaust. Aksturinn hófst í miðbæ Reyðarfjarðar og lá um götur bæjarins áleiðis upp í Egilsstaði en lögregla stöðvaði för hans við Neðstubrú yfir Fagradalsá.
Hann mældist á 136 km/klst hraða þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst og hafði þá ítrekað hunsað stöðvunarmerki lögreglu. Áfengismagn í blóði hans mældist 2,46 prómill auk þess sem ummerki fundust um að hann hefði neitt kannabis fyrir aksturinn.
Hann er því ákærður fyrir að hafa „raskað umferðaröryggi á alfaraleið“ og að hafa „ófyrirleitinn hátt“ stofnað „lífi og heilsu vegfarenda og lögreglumanna í augljósan háska.“
Farið er fram á að maðurinn verði dæmdur til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og sviptingar ökuréttar.