Rannsókn á eldsupptökum í Berufirði langt komin: Ég á fjölskylduna mína ennþá

berufjordur fiskeldi fossardalur webRannsókn á upptökum elds í íbúðarhúsinu Hamraborg í Berufirði í fyrrinótt er vel á veg komin. Sjö manna fjölskylda á tveimur vegfarendum mikið að launa en þeir vöktu fjölskylduna og björguðu henni út úr reykfylltu húsinu.

„Ég á fjölskylduna mína enn þá. Ég get ekki beðið um meira," sagði fjölskyldufaðirinn Jón Vigfússon í samtali við RÚV í gær.

Tveir sjómenn á leið heim á Höfn frá Breiðdalsvík óku framhjá húsinu í fyrrinótt og sáu þá eld í hlið hússins. Þeir fóru inn í húsið, vöktu þar sjö manna fjölskyldu í fastasvefni, komu henni út og hjálpuðu til við að slökkva eldinn.

Neðri hæð hússins var full af reyk en reykskynjarar höfðu ekki farið í gang.

Hjá lögreglunni á Eskifirði, sem rannsakar málið, fengust þær upplýsingar í morgun að rannsókn málsins væri langt komin. Eldsupptökin hafi verið við reykrök frá kamínunni, þar sem það fer um útvegg. Kamínan var í notkun og allt bendir til þess að hiti frá rörinu hafi orsakað að eldur varð laus í klæðningu hússins.

Úr Berufirði. Mynd: Guðný Gréta Eyþórsdóttir

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar