Barði NK stopp á Ísafirði vegna bilunar
Barði NK, skip Síldarvinnslunnar hefur verið stopp á Ísafirði undanfarna þrjá daga vegna bilunar. Skip fyrirtækisins hafa síðustu tvær vikur verið á síldarveiðum á Breiðafirði.„Það er bilun í spilkerfi. Það hefur engin áhrif á veiðiferðina," segir Karl Jóhann Birgisson, rekstrarstjóri útgerðar hjá Síldarvinnslunnar.
Börkur og Beitir hafa varið síðustu tveimur vikum að mestu á Breiðafirði við veiðar á íslensku sumargotssíldinni. Beitir kom til Norðfjarðar í gær með 1250 tonn.