Ætluðu í Norrænu með þýfi úr Elko
Tveir einstaklingar voru handteknir á leið sinni í Norrænu í síðustu viku með þýfi úr stóru ráni úr raftækjaversluninni Elko undir höndum. Þeir sitja nú í gæsluvarðhaldi.Tveir erlendir ríkisborgarar í bíl á íslenskum númerum voru handteknir á leið í gegnum innritunarröð Norrænu síðasta miðvikudag. Heimir Ríkharðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að á þeim hafi fundist það þýfi sem náðst hefur eftir ránið í Elko.
Fyrir rúmri viku var brotist inn í tvær verslanir Elko á höfuðborgarsvæðinu og stolið þaðan raftækjum, símum og minni tækjum, fyrir tugi milljóna króna. Fljótlega voru fjórir handteknir vegna málsins. Þremur var sleppt en einn situr í gæsluvarðhaldi til 4. október.
Að auki voru einstaklingarnir tveir handteknir á Seyðisfirði. Þeir voru fluttir til Reykjavíkur og úrskurðaðir þar í gæsluvarðhald fram til 2. október. Heimir segir verið að meta framhaldið á stöðu þeirra.
Rannsókn málsins er enn í fullum gangi og fylgst með sendingum úr landi til að freista þess að endurheimta meira af þýfinu.