Austfirðingum býðst að hitta matvælaráðherra
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra og þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi, hefur að undanförnu verið á ferð um landið og býður heimafólki að bóka fundi með sér um málefni ráðuneytisins. Hún kemur í Egilsstaði á fimmtudag.„Þessar heimsóknir hafa verið afskaplega gagnlegar. Það er dýrmætt að geta sest niður með íbúum hinna dreifðari byggða og átt við þau samtal í augnhæð um þau mál sem á þeim brenna,“ er haft eftir Bjarkeyju í tilkynningu.
Hún verður með aðstöðu í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á fimmtudag. Hægt er að bóka fundi með henni í gegnum aðstoðarkonu hennar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Á miðvikudag verður hún í Nýheimum á Höfn í Hornafirði.