Braust inn hjá lögreglunni á Eskifirði
Lögreglan á Eskfirði hafði snör handtök þegar brotist var inn í bænum í seinustu viku. Hinn bíræfni þjófur braut sér leið inn á sjálfa lögreglustöðina.
Frá þessu greinir fréttavefurinn Vísir í dag. Þrettán ára unglingur braut stóra rúðu og kom sér inn á stöðina. Við það fór öflugt þjófavarnarkerfi í gang og lögreglumenn náðu stráknum á fyrstu mínútunum eftir innbrotið.
Mál hans hefur verið sent barnaverndaryfirvöldum.
Þetta mun vera í annað sinn í sögunni sem brotist er inn á stöðina. Í bæði skiptin hafa gestirnir verið gripnir snarlega.