Óbreytt útsvar í Fjarðabyggð
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur samþykkt að útvar ársins 2011 verði óbreytt, 13,28% en sveitarfélagið fullnýtir útsvarsheimildir sínar í dag. Hlutfallið kann að hækka með færslu málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
Verði þjónusta við fatlaða flutt til sveitarfélaga er gert ráð fyrir að útsvarið hækki um 1,2% í 14,48%.
Í bókun bæjarstjórnar segir að miðað við núverandi aðstæður í rekstri þess sé annað óvarlegt en að fullnýta útsvarsheimildina. „Þrátt fyrir að heimildin verði fullnýtt er ljóst að vinna þarf áfram í hagræðingar og sparnaðaraðgerðum í rekstri á næsta ári.“