Engar upplýsingar um lögregluaðgerð á Seyðisfirði
Lögreglan á Austurlandi tjáir sig ekki að svo stöddu um aðgerð sem hefur verið í gangi á Seyðisfirði á síðan í gærkvöldi.Samkvæmt heimildum Austurfréttar hefur merktur lögreglubíll verið staðsettur utan við einbýlishús í bænum síðan í gærkvöldi. Annar merktur bíll bættist við seinni partinn í dag.
Lögreglan á Austurlandi tjáir sig ekki um málið að svo stöddu.