Félagsstarf eldri borgara á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði lagt niður tímabundið
Félag eldri borgara á Reyðarfirði hefur í samráði við Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar ákveðið að fella tímabundið niður félagsstarf eldri borgara. Félag eldri borgara á Fáskrúðsfirði tók einnig ákvörðun um lokun í gær frá deginum í dag.
Á vef Fjarðabyggðar segir að með þessum aðgerðum vill félagið bregðast við leiðbeiningum landlæknis vegna Covid-19 og leggja sitt af mörkum til að sporna gegn útbreiðslu sjúkdómsins og verja einstaklinga í áhættuhópum.
Helga Elísabet Guðlaugsdóttir félagsmálafulltrúi Fjarðabyggðar segir að verkefnastjóri sem hefur umsjón með málefnum eldri borgara hefur verið í samskiptum við félögin og gengið úr skugga um að allir séu upplýstir um æskileg viðbrögð við smithættu.
„Félag eldri borgara á Reyðarfirði óskaði eftir að loka félagsstarfinu tímabundið en þar vinnur einn starfsmaður og var það því gert í samstarfi félagsins og Fjarðbyggðar. Hin félögin eru með þjónustusamning við Fjarðabyggð þannig að þar eru ekki starfsmenn á okkar vegum. Önnur félög fylgjast líka vel með framvindunni.“
Hún bætir við að þar sem enn hefur ekki verið sett á samkomubann telur Fjarðabyggð ekki rétt að skikka félögin til að loka og treystir því að eldri borgarar sem og aðrir gæti vel að hreinlæti og óþarfa snertingum við annað fólk.