Fjarðabyggð: Sviptingar í öðrum tölum

Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, sem verið hefur í Fjarðabyggð frá 2010, er heldur samkvæmt öðrum tölum úr sveitarfélaginu. Hann var hins vegar fallinn samkvæmt fyrstu tölum.

Sjálfstæðisflokkur heldur þremur fulltrúum en á síðasta mann inn. Fjórði maður Fjarðalista og annar maður Miðflokksins eru næstur inn og vantar 33-41 atkvæði til, samkvæmt tölum frá yfirkjörstjórn Fjarðabyggðar.

Miðflokkurinn, sem er nýr í sveitarfélaginu, fær einn fulltrúa. Fjarðalistinn fær flest atkvæði og þrjá fulltrúa.

Talin hafa verið 1745 atkvæði. 3.463 voru á kjörskrá. Ekki hefur verið staðfest hve mörg atkvæði voru greidd alls í dag.

Framsóknarflokkur: 394 atkvæði, 23,3% og 2 fulltrúar.
Sjálfstæðisflokkur: 457 atkvæði, 27% og 3 fulltrúar.
Miðflokkurinn 272 atkvæði, 16,1% og 1 fulltrúi.
Fjarðalistinn 569 atkvæði, 33,6% og 3 fulltrúar.
Auðir og ógildir: 53 eða 3%.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 37,35% í síðustu kosningum og tapar tíu prósentustigum eða tæpum 30% af fylgi sínu. Framsóknarflokkurinn fékk 29,8% síðast og tapar því rúmum sex prósentustigum. Fjarðalistinn bætir við sig tæpu prósentustigi og Miðflokkurinn kemur nýr inn.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.