Fjórir erlendir ferðamenn sluppu með skrekkinn á Fjarðarheiði

Betur fór á en horfðist þegar bifreið með fjórum erlendum ferðamönnum fór út af í hálku á Fjarðarheiði fyrir hádegi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór bíll fólksins út af veginum við Efri-Staf og töluvert langt út fyrir veginn.

Aðkoman leit því ekki vel út en fjórmenningarnir virðast hafa sloppið með skrekkinn. Þeir voru fluttir með sjúkrabíl á heilsugæslu til öryggis. Þeir héldu síðan för sinni áfram eftir að hafa fengið nýjan bílaleigubíl.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar