Frostakafli framundan á Austurlandi
Nú sér fyrir endann á hlýindaskeiðinu sem ríkt hefur í landinu öllu lunga nóvembermánaðar og frá og með sunnudeginum eru hitatölur bláar frameftir næstu viku.
Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir að á Austurlandi fari að kólna bratt síðdegis á morgun föstudag og frá og með sunnudeginum verður hiti undir frostmarki og allt niður í sjö stiga frost á þriðjudaginn kemur á allnokkrum stöðum. Áfram verður þó hæglætisveður.
Veðurstofan hefur enn ekki yfirfarið eða birt gögn sín fyrir liðinn nóvembermánuð í heild en stöku veðurfræðingar telja víst að nóvember hafi verið einn sá allra hlýjasti í heila öld. Átta til tólf stig hefur verið algengt hitastig austanlands síðustu dægrin og hlýrra verið hér en víða í Evrópu svo dæmi sé tekið.
Spá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir töluverðu frosti víðast hvar á Austurlandi vel frameftir næstu viku. Skjáskot