Fyrsta sumarferð Norrænu
Um átta hundruð farþegar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun í fyrstu ferð ferjunnar á þessu ári á sumaráætlun hennar. Nóg hefur verið um að vera í höfninni þar sem skemmtiferðaskip eru einnig á ferjunni.Samkvæmt upplýsingum frá Tollgæslunni gekk afgreiðsla Norrænu vel þrátt fyrir fjölda farþega. Sumaráætlun Norrænu tók gildi síðasta laugardag og er siglt eftir henni til 22. ágúst.
Tollverðir á Seyðisfirði hafa fylgt eftir átaki sem fór af stað í apríl þar sem sérstaklega er fylgst með innflutningu og skráningu hópferðabifreiða sem koma til landisns á erlendum skráningarmerkjum og eru ætlaðar til atvinnustarfsemi hérlendis. Eftirlitið snýr bæði að bifreiðum og starfsmönnum, svo sem ökumönnum.
Norræna var ekki eina skipið í Seyðisfjarðarhöfn í dag þar sem skemmtiferðaskipið Ocean Diamond var einnig á ferðinni. Skipið fer hringferðir um landið, það kom frá Húsvík í morgun og heldur áfram til Djúpavogs í kvöld. Skipið getur tekið um 200 farþega.
Þá var nóg um að vera í gær þegar Viking Sky kom við í síðustu höfn sinni á Íslandi í þessari ferð. Þar um borð voru um 2000 farþegar.