Gauti: Málefnasamningur tilbúinn um miðja vikuna
Gauti Jóhannesson oddviti Sjálfstæðisflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi, Múlaþingi, segir að hann reikni með að málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verði tilbúinn um miðja vikuna.„Það hefur verið mjög góður gangur í meirihlutaviðræðum okkar við Framsóknarflokkinn,“ segi Gauti í stuttu spjalli við Austurfrétt. „Við erum langt komnir með málefnasamning okkar og ég reikna með að hann verði kynntur um miðja vikuna.“
Eins og fram kom í kosningabaráttu fyrir sveitarstjórnarkosnsingarnar var ekki samhljómur með stefnu þessara tveggja flokka hvað bæjarstjórastöðuna varðaði. Framsókn vildi hafa Björn Ingimarsson áfram í stöðunni en Sjálfstæðisflokkurinn vildi bíða eftir úrslitum kosninganna hvað þetta varðaði.
Aðspurður um þetta atriði segir Gauti að bæjarstjórastaðan sé eitt af þeim fáu atriðum sem eftir á að ganga frá.