Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 10% í júní
Gistinóttum á hótelum á Austurlandi fjölgaði um 10% í nýliðnum júnímánuði, samanborið við sama mánuð í fyrra. Þróunin er öfugt eystra miðað við flesta aðra landsfjórðunga.Þetta kemur fram í bráðabrigðatölum sem Hagstofan sendi frá sér í dag.
Á landsvísu er 5% fækkun á hótelum, 14% fækkun á gistiheimilun en 10,5% fækkun í Airbnb gistingu. Ekki er búið að brjóta niður gistinætur eftir landshlutum fyrir aðra gististaði en hótel enn.
Þeim fjölgar á tveimur landssvæðum, annars vegar á Austurlandi, hins vegar á Norðurlandi þar sem aukningin er 8%. Gistinætur eru enn áberandi fæstar á Austurlandi þegar landshlutarnir eru bornir saman. Mesta fækkunin er á Vesturlandi/Vestfjörðum um 14% og 11% á Suðurnesjum.
Austurland er eina landssvæðið þar sem herbergjanýting hótela eykst milli ára. Herbergin þar eru á móti fæst og fjölgar aðeins um 0,5% á milli ára, sem er það minnsta yfir landið.