Hægt en örugglega gengur að hreinsa til í Neskaupstað
Hægt en örugglega gengur að hreinsa til í Neskaupstað eftir það sem á undan er gengið með snjóflóðahættu um tveggja vikna skeið og mikla ofankomu á skömmum tíma.
Hratt og vel hefur gengið að hreinsa enda orðið marautt. Að sögn upplýsingafulltrúa Fjarðabyggðar, Haraldar Líndal Haraldssonar, er aðaláherslan nú á að hreinsa við íbúðarhúsin við Starmýri og svo er að hluta til eftir að hreinsa við þau hús sem flóðið féll á. Allir séu að leggja hönd á plóginn en ekki er ljóst hvenær hreinsunarstarfinu muni ljúka að fullu að svo stöddu.
Ofanflóðadeild Veðurstofu Íslands telur enn nokkra hættu til staðar á flóðum á Austfjörðum og þá fyrst og fremst votflóðum vegna rigninga og hlýnunar. Frá og með morgundeginum lækkar þó hættustigið úr „nokkur hætta“ í „lítil hætta.“
Á ferð í Neskaupstað fyrir tveimur vikum höfðu bæjarbúar orð á að snjómagnið minnti á gamla tíma þegar mun meira snjóaði reglulega í bænum en hin síðari ár. Svo mikið var magnið fyrir viku að heilu traktorarnir hurfu nánast í snjóinn. Mynd AE