Halda sirkusnámskeið í Fellabæ og Neskaupstað
Sirkushópurinn Hringleikur býður upp á tveggja daga sirkusnámskeið fyrir 8-16 ára í íþróttahúsinu í Fellabæ 30.-31. júlí. Námskeiðið er klukkan 11:00-13:30 báða dagana. Á sömu dögum og tímum er einnig boðið upp á slíkt námskeið í íþróttahúsinu í Neskaupstað.Fjallað er um málið á vefsíðu Múlaþings en þar segir að um sé að ræða skemmtilegt og líkamlega krefjandi sirkusnámskeið þar sem þátttakendur kynnast undirstöðum sirkuslistanna.
„Námskeiðið er í boði MMF og er þátttakendum að kostnaðarlausu, en mikilvægt er að skrá nemendur til þátttöku. Ef skráður nemandi mætir ekki og ekki er tilkynnt um forföll með minnst sólarhringsfyrirvara má búast við að rukkað verði forfallagjald að upphæð 3.000 kr.,“ segir á vefsíðunni.