Heimastjórnir í nýju sveitarfélagi
Gert er ráð fyrir að fjórum þriggja manna heimastjórnum verði falið afgreiðsluvald gagnvart völdum verkefnum í sínu nærumhverfi í nýju sveitarfélagi á Austurlandi sem til gæti orðið við sameiningu fjögurra sveitarfélaga.Þetta er meðal þess sem fram kemur í minnisblaði starfshóps á vegum sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs, Djúpavogshrepps, Borgarfjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar um fjármál og stjórnsýslu. Hugmyndir starfshópanna verða nánar kynntar á íbúafundum sem haldnir verða í vikunni en sá fyrsti verður á Borgarfiðri í kvöld.
Starfshópurinn leggur áherslu á að gera stjórnkerfið einfalt og skilvirkt þannig að starfræktar verði fáar fagnefndir en þær fundi oftar en gert er.
Gert er ráð fyrir þremur fagnefndum, bæjarráði, fjölskylduráði og umhverfis- og framkvæmdaráði sem fundi vikulega á hefðbundnum vinnutíma. Í þeim sitji að mestu kjörnir fulltrúar og kjörum verði breytti þannig að þeir sem veljast til starfanna geti verið í hlutastörfum á öðrum vettvangi.
Bæjarstjórn verður eftir sem áður æðst og fundar mánaðarlega. Áfram verða til staðar nokkur sérráð svo sem ungmennaráð og öldungaráð.
Til viðbótar verða þriggja manna heimastjórnir í byggðakjörnunum fjórum. Þær hafi ákveðið afgreiðsluvald gagnvart sínu nærumhverfi auk þess að hafa ráðgjafarhlutverk gagnvart bæjarstjórn. Með hverri heimastjórn starfi fulltrúi bæjarstjóra sem hafi aðsetur á viðkomandi stað.
Þá er lögð áhersla á rafræna stjórnsýslu til að sinna þjónustu við íbúa í víðfeðmu sveitarfélagi. Eftir sem áður verði staðbundin afgreiðsla í öllum meginkjörnum.
Ennfremur kemur fram í minnisblaðinu að svigrúm til árlegra fjárfestinga sé 235-485 milljónir króna, miðað við að framkvæmdir verði eingöngu fjármagnaðar með eigin fé. Hópurinn telur sveitarfélagið vel sjálfbært og standast vel reglur um skuldastöðu og rekstrarafkomu.