Hótelgisting jókst allsstaðar nema á Austurlandi
Gistinætur á hótelum í júní voru 188.000 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum nema á Austurlandi, þar sem hún dróst saman um 3%.Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Þar segir að mest var aukningin á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinætur fjórfölduðust, fóru úr 18.600 í 74.200 á milli ára. Á Suðurnesjum var aukningin 267%, á Suðurlandi 63% og á Norðurlandi 49%.
Gistinætur Íslendinga voru 82.600, eða 44% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 105.450 eða 56%. Erlendar gistinætur í júní sjöfölduðust milli ára meðan íslenskum gistinóttum fjölgaði um 10%.