Kennarar á Egilsstöðum sýndu samstöðu með kollegum í verkfalli

Hópur 26 kennara úr Menntaskólanum á Egilsstöðum, Egilsstaðaskóla og Fellaskóla fóru í stuðningsgöngu síðdegis í gær til að votta kollegum sínum sem eru í verkfalli annars staðar í landinu stuðning sinn.

Hópurinn gekk, meðal annars með kröfuspjöld, niður Fagradalsbraut á Egilsstöðum síðdegis í gær áður en staldrað var stundarkorn í garðinum við hlið Nettó þar sem þátttakendur tóku undir kröfur félaga sinna í verkfalli með húrrahrópum. Allir sem Austurfrétt ræddi við tóku heils hugar undir kröfur kennara um betri laun og meiri virðingu fyrir faginu af hálfu stjórnvalda.

Ótímabundin verkföll hófust í níu skólum á þriðjudaginn var. Þar um að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Fjórir skólar  til viðbótar hafa tilkynnt verkfallsaðgerðir síðar í næsta mánuði ef ekki næst saman með samninganefndum.

Kennararnir á Egilsstöðum og í Fellabæ ætla að endurtaka stuðningsgöngu sína að viku liðinni og vonast þá til að fá leikskólakennara svæðisins með sér í gönguna. Þeir komust ekki frá vegna vinnu í þetta skiptið. Allir aðrir sem vilja sýna stuðning velkomnir.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.