Nýr Birtingur í flota Síldarvinnslunnar
Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur keypt ferskfisktogarann Þóri af Skinney – Þinganesi á Höfn í Hornafirði. Hann er einnig búinn til netaveiða.Skipið var smíðað í Taívan árið 2009 og er 637 brúttótonn að stærð. Árið 2019 voru gerðar á því miklar endurbætur og það meðal annars lengt um tíu metra, brúin var hækkuð, öll aðstaða endurbætt og stýrið endurnýjað. Síðast var nýr spilstjórnarbúnaður settur í skipið á þessu ári.
Skip með nafninu Birtingur var síðast í skipakosti Síldarvinnslunnar á árunum 2012-16. Það skip hafði áður heitið Börkur en gaf eftir nafnið þegar stærra skip kom í hópinn. Nafninu var breytt í Janus árið 2016 þegar það var selt til pólskrar útgerðar en dvaldi svo mest á Reyðarfirði þar til það var selt til Mexíkó árið 2016.
Einkennisstafir skipsins verða NK 119. Ekki fengust nánari upplýsingar hjá Síldarvinnslunni í dag um það nákvæmlega útgerð skipsins verði hagað.
Þórir hefur í gegnum aðallega veitt bolfisk og humar. Verkefnum skipsins hefur fækkað verulega með brotthvarfi humarsins. Það landaði síðast um miðjan nóvember í fyrra.
Mynd: Síldarvinnslan/Skinney