Olís í endurbætur fyrir jólin

„Þjónustustöð Olís mun verða áfram í Fellabæ. Nýir eldsneytistankar eru væntanlegir til landsins í desember og áætlað er að framkvæmdir við nýtt áfyllingarplan hefjist innan fárra vikna,“ segir Örn Franzson, tæknifræðingur á framkvæmdasviði Olís.

Eins og fram kemur í frétt hér á austurfrett.is hefur Heilbrigðiseftirlit Austurlands, HAUST, veitt Olís frest til 15. desember til að ljúka endurbótum á svokölluðu áfyllingarplani, sem í þessu tilfelli er malarplan, en ætti reglum samkvæmt að vera steypt og með viðeigandi niðurföllum svo ekki sé hætta á að bensín og olía leki út í jarðveginn ef óhapp verður. Ennfremur eru eldsneytistankar í jörðu komnir á tíma. HAUST hefur hótað Olís dagsektum ef endurbótum verður ekki lokið fyrir tilskyldan tíma.

Kvittur hefur verið uppi um að Olís hafi dregið lappirnar við endurbætur á áfyllingarplani stöðvarinnar vegna óvissu um framtíð núverandi brúar yfir Lagarfljót og þá í framhaldi að vegurinn verði færður. Viðgerð á núverandi brú er hins vegar komin á samgönguáætlun og ljóst að nýtt vegarstæði er ekki á dagskrá í nánustu framtíð.

„Þetta hefur vissulega verið óvissuþáttur, en nú er hann úr sögunni, í bili að minnsta kosti,“ segir Örn. „Endurbætur á áfyllingarplaninu hafa því miður dregist, en nú sér fyrir endann á því. Það er verið að ljúka við hönnun nýrra eldsneytislagna við stöðina. Við munum færa tankana í jörðu eitthvað til, en dælurnar verða á sama stað. Nýjir tankar eru væntanlegir til landsins í desember, þannig að framkvæmdir ættu að geta hafist innan fárra vikna,“ segir Örn Franzson og samkvæmt því má gera ráð fyrir að framkvæmdir við endurbætur verði hafnar á þjónustustöð Olís í Fellabæ fyrir jól.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.