Sex sóttu um stöðu aðstoðarskólameistara
Sex umsóknir bárust um stöðu aðstoðarskólameistara Verkmenntaskóla Austurlands, en umsóknarfrestur um starfið rann út í byrjun mánaðarins.Starfið er nýtt í skólanum en í úttekt sem unnin var fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið árið 2014 er mælst til þess að henni verði komið á til að létta álagi af öðrum stjórnendum.
Skólameistari VA ræður í stöðuna. Umsækjendur eru eftirtaldir:
Guðmundur Arnar Guðmundsson, framhaldsskólakennari
Guðrún Ásgeirsdóttir, umsjónarkennari
Ingimundur Einar Grétarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
Karen Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
Sigrún Júlía Geirsdóttir, grunnskólakennari
Þórdís Sævarsdóttir, kennari og verkefnastjóri