Skoða göngustíga í Fjarðabyggð eftir umferðarslys
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar yfirfer nú öryggi á göngustígum í sveitarfélaginu í kjölfar slyss sem varð í Neskaupstað í síðasta mánuði þar sem ungur drengur varð fyrir bíl.Óhappið varð um miðjan september en drengurinn fór á hjólabretti niður göngustíg sem liggur milli Þiljuvalla og Miðstrætis og lenti á bíl sem ekið var Miðstræti.
Í kjölfarið sendi lögreglan á Austurlandi bréf til Fjarðabyggðar þar sem bent er á að ekkert hlið, eða annað sem hægði á ferð um göngustíginn, væri við enda hans. Jafnframt er vakin athygli á að samsvarandi hætta geti verið á fleiri stöðum innan sveitarfélagsins.
Erindi lögreglunnar var tekið fyrir á fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar Fjarðabyggðar í síðustu viku. Framkvæmdasviði sveitarfélagsins var þar falið að taka saman upplýsingar um sambærilega göngustíga og gera tillögur að úrbótum ef þyrfti.