Styrktarsjóður stofnaður í nafni Violetu Mitul

Ungmennafélagið Einherji hefur komið á fót styrktarsjóði í nafni moldóvsku knattspyrnukonunnar Violetu Mitul, sem fórst af slysförum fyrir ári. Fjölsótt minningarathöfn um hana var haldin á Vopnafirði fyrir viku.

Stuðningsmenn Einherja hafa að undanförnu gefið stofnframlag í sjóðinn sem ætlað er að styrkja efnaminni fjölskyldur á Vopnafirði til að tryggja að börn þeirra geti tekið þátt í íþróttum. Hugmyndir eru einnig uppi um knattspyrnumót í minningu hennar.

„Hennar fjölskylda þurfti að færa fórnir þannig að Violeta gæti stundað knattspyrnu. Stuðningsmenn hafa gefið í sjóðinn og það er enn tekið við framlögum,“ segir Víglundur Páll Einarsson, formaður Einherja og þjálfari meistaraflokks kvenna.

Violeta var 26 ára gömul er hún lést eftir að hafa hrapað fram af kletti á Vopnafirði aðfaranótt 4. september í fyrra. Búið er að koma upp litlum minningarreit á bjargbrúninni. Í vor var gróðursett hjarta úr blómum og við minningarathöfn þar í síðustu viku komið upp bekk til að sitja á hann. Á hann er letrað nafn Violetu og minningarorð á móðurmáli hennar og íslensku. Strax eftir slysið var bætt úr öryggismálum við klettana.

Minningarathöfnin hófst á minningarorðum og tónlistarflutningi þar. Kveikt var á kertum sem mynduðu töluna 11, númerið á treyjunni sem Violeta spilaði í með Einherja. Treyjur með nafni hennar og númeri hanga uppi í bæði vallarhúsi knattspyrnuvallarins og búningsklefa Einherja en númerið var ekki notað af liðinu í sumar.

Athöfnin hélt áfram við íþróttavöllinn. Þar sem fjölskylda Violetu, sem gerði sér ferð til Íslands til að taka þátt, gróðursetti tré til minningar um Violetu. Athöfnin var fjölsótt en um 70 einstaklingar rituðu nöfn sín í gestabók.

Víglundur Páll segir það skipta bæði Vopnfirðinga og fjölskylduna máli að halda minningu Violetu á lofti. „Við reynum að gera okkar besta til að minnast hennar. Við vitum að það skiptir fjölskyldu hennar miklu máli. Við erum líka með nánast sama leikmannahóp og í fyrra þannig að minningin um hana er sterk.“

Mynd: Urður Steinnunn Önnudóttir Sahr

Violeta Mitul Minning 24 Urdursahr Web
Violeta Mitul Minning 24 Urdursahr Web 2
Violeta Mitul Minning 24 Urdursahr Web 4
Violeta Mitul Minning 24 Urdursahr Web 3

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.