Verkfall Eflingar hefur áhrif á Austfirðinga
Ruslageymslum í íbúðum AFLs Starfsgreinafélags í Stakkholti í Reykjavík hefur verið læst þar sem ótímabundið verkfall félagsfólks í Eflingu, þar með talið sorphirðufólks, hófst á miðnætti. Framkvæmdastjóri AFLs segir umgengni fólks á svæðinu ráða því hve lengi verði hægt að halda íbúðunum opnum.Ótímabundin vinnustöðvun starfsmanna Eflingar stéttarfélags hjá Reykjavíkurborg hófst á miðnætti. Verkfallið kann að hafa áhrif á þá sem dveljast í íbúðum AFLs en ekki verður hægt að halda þeim opnum ef ekki verður vel gengið um sorpgeymslur fjölbýlishúsanna og það hvorki skilið eftir á göngum né í bílageymslu.
„Við styðjum við verkfall Eflingar. Þess vegna kemur ekki til greina að ganga í störf félagsmanna,“ segir Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs.
Á heimasíðu félagsins kemur fram að búið sé að læsa ruslageymslum og láta þá sem dveljast í íbúðunum vita. Sverrir segir það fyrirbyggjandi aðgerðir að læsa geymslunum til að koma í veg fyrir að þar verði óþefur eða umgangur meindýra. „Það veltur á umgengni hve lengi við getum haft íbúðirnar opnar.“
Sverrir að erfitt yrði að grípa til slíkra aðgerða sem myndu bitna verst á félagsmönnum sem farið hafa suður til að leita sér læknisaðstoðar. Hann útilokar ekki að fólk í slíkum aðstæðum fengi undanþágur en það yrði ekki gert með þeim hætti að gengið yrði í störf félagsfólks Eflingar.
Félagar í AFLi samþykktu í byrjun síðustu viku samnings sem Starfsgreinasambandið gerði fyrir þess hönd við sveitarfélögin. Um þriðjungur þeirra sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði af þeim sögðu tæp 77% já en 17,6% nei. Það var í takt við önnur aðildarfélög Starfsgreinasambandsins. Skömmu fyrir undirritun samningsins klauf Efling sig hins vegar út úr samfloti aðildarfélaganna sem er grunnurinn að deilu þess við borgina.