Ríkisstjórnin hefur að tillögu forsætisráðherra samþykkt að skipa starfshóp sem fær það hlutverk að kanna hvernig koma megi á reglulegu millilandaflugi um flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum.
Ekkert hefur enn verið ákveðið um framtíð útibúa Sparisjóðs Vestmannaeyja á Breiðdalsvík og Djúpavogi eftir að Landsbankinn yfirtók sjóðinn í gær eftir áhlaup innistæðueigenda.
AFL Starfsgreinafélag hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar hjá fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar hjá Alcoa Fjarðaáli við framleiðslu, viðhald og þjónustu. Verkfallsboðunin tekur til starfa verkamanna, iðnaðarmanna og verslunarmanna.
Heilbrigðisráðherra segir að endurskoða þurfi reglur um lífeyrisgreiðslur til þeirra sem komi inn í hjúkrunarrými þannig að á þær verði litið sem réttindi einstaklinga en ekki fjárveitingar til stofnana.
Um 350 farþegar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun í fyrstu farþegaferð ársins. Ferjan er fyrr á ferðinni en áður og fleiri með í fyrstu ferð en áður.
Nítján ára karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands fyrir helgi dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fyrir að birta fimm nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni á Facebook. Dómurinn hafnaði öllum rökum drengsins.
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í nýjan Uppbyggingarsjóð Austurlands. Tilgangur sjóðsins er að styrkja menningar- og nýsköpunarverkefni og önnur verkefni á Austurlandi.
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt sextugan karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að falsa undirskrift sjálfskuldarábyrgðarmanns á skuldabréfi og fjarlægja lausamuni úr bát eftir að hann var seldur á uppboði.
Framkvæmdastjóri læknina hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands segir að stöðug umræða sé innan læknastéttarinnar um útgáfu veikindavottorða. Framkvæmdastjóri segir frjálslega útgáfu þeirra kosta atvinnurekendur háar fjárhæðir á hverju ári.
Sænski hönnuðurinn Daniel Byström segir að hönnun áfangastaða snúist ekki bara um upplifun ferðamanna heldur íbúanna líka. Austfirðingar hugsa hvernig þeir vilji miðla ímynd svæðisins.
að er ekki á hverjum degi að maður heyrir um dverglömb. En á dögunum barst Austurfrétt ábending um að eitt slíkt væri að finna á bænum Sléttu í Reyðarfirði. Blaðamaður var ekki lengi að setja sig í samband við bændur á staðnum til að fá að vita meira um lambið sem að öllu jöfnu er kallað Dvergurinn.