Gerði hreindýrapylsu sérstaklega fyrir ferðina austur
Hreindýrapylsa og heiðargæsahamborgari eru á matseðlinum í matarvagni Silla kokks sem verður á Egilsstöðum um helgina. Pylsan er sérstaklega gerð fyrir ferðina austur.„Fyrst maður er mættur á Héraði þá er það hreindýrapylsa með kakóbaunum. Síðan er það heiðargæsahamborgari með gæsakæfunni minni sem vann gullverðlaun í haust.
Þetta er einfalt og gott. Það skiptir máli í þessum vögnum að flækja hlutina ekki of mikið,“ segir Sigvaldi Jóhannesson matreiðslumaður, betur þekktur sem Silli kokkur.
Eins og sést á matseðli helgarinnar leggur Silli áherslu á villibráð, enda mikill veiðiáhugamaður. „Þetta er splunkunýr matseðill. Ég hef boðið upp á hann síðustu tvo daga á Akureyri. Viðtökurnar þar voru mjög góðar. Einn sagði mér, þegar hann kom í seinna skiptið, að hann hefði fellt tár yfir hamborgaranum.“
Fyrr í sumar vann Silli kokkur til tvenna verðlauna á Götubitahátíð Íslands í sumar, þar á meðal fyrir besta götubitann. „Ég fæ hugmyndir og geri eitthvað sem annað hvort virkar eða ekki. Maður er í endalausri tilraunastarfsemi.“
Þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur austur. „Ég lét undan pressu frá mönnum á snappinu. Þetta er ein síðasta helgin þar sem hægt er að fara um landið áður en haustið kemur,“ segir hann.
Vagninn stendur á bílaplaninu við verslun Nettó á Egilsstöðum. Opið verður til klukkan átta í kvöld og 11-20 á morgun. „Svo verð ég með opið í hádeginu á sunnudag, ef ég á eitthvað eftir þá.“