Allar fréttir
Mikil hálka á vegum
Vegagerðin varar vegfarendur við hálku, hálkublettum og snjóþekju. Flughált er á Jökuldal, Borgarfjarðarvegi og Breiðdalsheiði og sömuleiðis á Fjarðarheiði. Spáð er ágætu veðri á Austurlandi á morgun, hálfskýjuðu, einhverri úrkomu og hægum vindi frá suðaustri.
Stöðfirðingar fá líkamræktaraðstöðu
Ný líkamsræktaraðstaða var tekin í notkun í íþróttahúsinu á Stöðvarfirði í gær. Rekstur hennar er í umsjón Ungmennafélags Súlunnar. Langur aðdragandi hefur verið að opnun aðstöðunnar en með velvilja bæjarbúa hefur nú loks tekist að klára málið. Góð mæting var við opnunina og vonandi nýtist nýja stöðin Stöðfirðingum vel til heilsubótar.
Fáskrúðsfirðingar vilja hafa sitt áhaldahús
Íbúafundur var haldinn á Fáskrúðfirði í gærkvöld og mættu þangað um eitthundrað manns. Auk annarra umfjöllunarefna voru málefni áhaldahúss á Fáskrúðsfirði í brennidepli og mikill hiti í fundargestum, sem mótmæltu því harðlega að leggja ætti áhaldahúsið/þjónustumiðstöðina niður og bjóða út verkefnin.
Gott í gogginn á föstudegi
Mótmælafundur á Egilsstöðum
Boðað hefur verið til mótmælafundar í Tjarnargarðinum á Egilsstöðum kl. 15:00 á morgun. Til fundarins er boðað að fyrirmynd mótmælafunda á Austurvelli í Reykjavík og víðar seinustu mánuði til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda í kringum efnahagshrunið og krefjast kosninga. Frummælendur á fundinum á Egilsstöðum verða Björgvin Valur Guðmundsson og Ingunn Snædal.Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar samþykkt
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana þess fyrir árið 2009 í gær. Hún felur í sér töluverðan halla og verður endurskoðuð í apríl í vor. Áætlunin var samþykktum með öllum atkvæðum. Laun bæjarfulltrúa verða skorin niður um 15%.