Ómótstæðilegar uppskriftir að hátíðarmat á gamlárskvöld
Austurglugginn er í hátíðarskapi og býður lesendum nú kræsilegar hugmyndir að góðgerðum gamlárskvöldsins.
Austurglugginn er í hátíðarskapi og býður lesendum nú kræsilegar hugmyndir að góðgerðum gamlárskvöldsins.
Skömmu fyrir jól fór fram fyrsti knattspyrnuleikurinn í nýrri og glæsilegri sparkhöll í Bakkagerðisþorpi á Borgarfirði eystra. Er hún í óupphitaðri skemmu og völlurinn lagður gervigrasi. Auk heimamanna hefur fjöldi gesta verið á Borgarfirði yfir hátíðina og því ekki ólíklegt að ýmis tilþrif verði höfð frammi á nýja vellinum á næstu dögum. Til hamingju með nýju höllina ykkar Borgfirðingar! Nú verður væntanlega tekið á því.
Jólaball Fljótsdalshéraðs verður haldið í dag, laugardaginn 27. desember, í fjölnotasalnum í Fellabæ. Það er Lionsklúbburinn Múli sem býður upp á jólaballið. Allir Héraðsbúar og aðrir gestir eru boðnir velkomnir. Ballið byrjar klukkan þrjú í dag og lýkur um klukkan fimm. Það verður að sjálfsögðu dansað í kringum jólatréð og jólasveinar væntanlegir í heimsókn. Upplýsingar um jólaböll víðar í Austfirðingafjórðungi eru vel þegnar inn á vefinn.
Vegagerðin stendur fyrir opnu húsi til kynna framvæmdina Norðfjarðarvegur um Norðfjarðargöng, miðvikudaginn 7. janúar 2009 í Egilsbúð, Neskaupsstað kl. 17:00 - 19:00 og fimmtudaginn 8. janúar 2009 í Valhöll, Eskifirði kl. 17:00 -19:00.
Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is.
Íbúum fækkar í sjö sveitarfélögum Austurlands af níu. Í tveimur langfjölmennustu sveitarfélögunum, Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði fækkar íbúum umtalsvert sem skýrist að langmestu leyti af búferlaflutningi erlendra verkamanna tengdum Kárahnjúkavirkjun og byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls erlendis. Hið sama má væntanlega segja um fækkun íbúa Fljótsdalshrepps. Íbúum í Fjarðabyggð fækkar úr 5.111 þann 1. desember 2007 í 4.736 1. desember síðastliðinn og á Fljótsdalshéraði fækkaði íbúum úr 4.073 í 3.707.
Stjórn Markaðsstofu Austurlands hefur ráðið Ástu Þorleifsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra. Hún mun koma til starfa í janúar og taka við af Kötlu Steinsson sem verið hefur framkvæmdastjóri Markaðsstofu Austurlands frá árinu 2004.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.