Úrslit liggja fyrir í vali lesenda vefsins á Austfirðingi ársins 2008. Það er skemmst frá því að segja að Einar Bragi Bragason, tónlistarmaður og skólastjóri Tónlistarskólans á Seyðisfirði, hlaut flest atkvæði.
Aðrir sem komu sterkir inn voru Matthildur Matthíasdóttir og foreldrar hennar í Neskaupstað fyrir aðdáunarvert æðruleysi og dugnað í erfiðum veikindum Matthildar, Ólafur Kristinn Kristínarson, fyrir óbilandi drifkraft í málefnum utandeildarknattspyrnu á Austurlandi, Jón Hilmar Kárason, tónlistarmógúll í Neskaupstað og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs starfsgreinafélags á Austurlandi, fyrir störf sín að verkalýðsmálum.
Nú eru áramótin að nálgast og því miður fylgja þeim alltaf flugeldaslys. Ólöf Snæhólm, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir tölfræði sýna að dagana fyrir og eftir áramót séu drengir í mestri hættu þegar kemur að flugeldaslysum. Flest verði þau þegar teknir eru í sundur flugeldar og gerðir úr þeim sprengjur sem valda alvarlegustu slysunum; jafnvel örkumlun.
Fimm áramótabrennur verða í Fjarðabyggð og í kjölfar þeirra glæsilegar flugveldasýningar.Að sögn aðila frá björgunarsveitunumfer flugeldasala vel af stað og stefnir allt í að áramótin íFjarðabyggð verði kvödd með hvelli.Veðrið ætti ekki að stoppa neinn í að njóta herlegheitannaþar sem veðurspáin fyrir Austurland er mjög góð. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er spáð köldu veðri og hægum vindi og hentar það vel til útiveru og flugeldaskota.
Brennur verða á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði eins og hér segir:
Eitt sveitarfélag í landinu hyggst lækka útsvarshlutfall frá því sem var í fyrra. Það er Fljótsdalshreppur, sem lækkar úr 13,03% í 12%. Fimmtíu og átta sveitarfélög hækka útsvarshlutfallið.
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) er nú að senda út uppsagnarbréf til allra lækna stofnunarinnar og taka þær gildi um áramót.
Einar Rafn Haraldsson, forstjóri HSA, segir að fyrirhugaðar séu uppsagnir ráðningarsamninga við lækna stofnunarinnar vegna þess að gera eigi breytingar á vaktafyrirkomulagi.
Bilun í Kárahnjúkavirkjun um miðnæturleytið orsakaði að rafmagn fór í nokkra stund af álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði í nótt. Að sögn vaktmanns hjá RARIK fór rafmagn einnig af á Djúpavogi og Breiðdal í stuttan tíma. Fljótlega tókst því að koma rafmagni á aftur.