Allar fréttir
Grisjast um mannskap í Hraunaveitu
Það fækkar á framkvæmdasvæði Kárahnjúkavirkjunar við Hraunaveitu í dag. Þá fara fimmtíu pólskir starfsmenn heim og koma ekki aftur. Síðustu erlendu starfsmennirnir við framkvæmdirnar fara um leið og vinna leggst af á svæðinu vegna vetrarríkis. Það verður líklega um miðjan nóvember.
Austfirskir listamenn sýna í Ráðhúsi Reykjavíkur
Þrír austfirskir listamenn sýna verk sín í Ráðhúsi Reykjavíkur um næstu helgi. Eru það Ágústa Margrét Árnadóttir, Hólmfríður Ófeigsdóttir og Lára Vilbergsdóttir. Taka þær þátt í stórri sýningu á handverki, listiðnaði og hönnun, á vegum Handverks og hönnunar. Fimmtíu og fjórir einstaklingar voru valdir til að sýna verk sín, en umsóknir voru fjölmargar.
Lára Vilbergsdóttir er ein þriggja austfirskra listamanna með verk á sýningu Handverks og hönnunar í Reykjavík um helgina.
ARKÍS hyggst loka starfsstöð á Egilsstöðum
ARKÍS hefur sagt starfsmönnum sínum á Egilsstöðum upp og verður starfsstöð fyrirtækisins þar lokað 1. febrúar að öllu óbreyttu. Þrír starfsmenn voru hjá fyrirtækinu á Egilsstöðum til skamms tíma, en eru nú tveir. Einar Ólafsson, byggingafræðingur, sem starfað hefur hjá ARKÍS segir stöðuna mjög erfiða hjá arkitektum og byggingafræðingum um land allt.
Vegagerðin undirbýr útboð
Í nýjum Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir nokkrum verkum á Austurlandi í útboð á næstunni. Verktakafyrirtæki, sem boðið hafa í vegaframkvæmdir á Austurlandi, óttast þó að verkum sem ekki eru þegar farin í útboð verði jafnvel frestað.
Leggjast saman á árar í kreppunni
Fulltrúar AFLs, VR, Fljótsdalshéraðs, Fjarðabyggðar, Vinnumálastofnunar Austurlandi, Þekkingarnets Austurlands og Starfsendurhæfingar Austurlands, hittust í vikunni og hófu að stilla saman strengi í þeim erfiðleikum sem búast má við á vinnumarkaði á Mið-Austurlandi. 62 eru skráðir atvinnulausir á Austurlandi.Myllan ehf. í aðhaldsaðgerðum
Myllan ehf. á Egilsstöðum mun segja upp tíu til fimmtán starfsmönnum fram að áramótum. Verkefnastaða Myllunnar er að sögn forstjórans erfið og stefnt að því að fækka starfsmönnum niður í um 30. Flestir voru þeir 75 í sumar, þar af fjórir verktakar. Verktakar á Austurlandi kvíða því að Vegagerðin hyggist draga í land með útboð stærri verkefna.