Miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit verður opnuð á Egilsstöðum 12. febrúar. Að rekstri hennar koma Fljótsdalshérað, Þekkingarnet Austurlands, Rauði krossinn, Vinnumálastofnun Austurlandi, Austurnet, AFL Starfsgreinafélag og VR, auk fleiri aðila. 375 eru nú á atvinnuleysisskrá hjá Vinnumálastofnun Austurlandi.
Það hefur lengi verið eitt af áhugamálum mínum að koma upp safni í Neskaupstað, Kommasafni, sem innihéldi upplýsingar um hálfrar aldar valdatíð vinstri manna í Neskaupstað eða þaðan af meira. Ég vil nefna það Kommasafn.
Jónas Egilsson stjórnmálafræðingur bloggar á bloggvef Morgunblaðsins um dóminn yfir mönnunum sem dæmdir hafa verið til fésekta vegna aksturs á sexhjóli við hreindýraveiðar. Hann segir ríkisvaldið skulda veiðimönnum og leiðsögumönnum skýringar á því hvernig skuli staðið að veiðum hreindýra á Íslandi.
Um hundrað manns mættu í Golfsmiðjuna í Fellabæ sem opnuðu á laugardag í húsnæði gömlu Trésmiðju Fljótsdalshéraðs, en þar hefur verið opnuð glæsileg golfaðstaða fyrir unga jafnt sem aldna. Boðið var upp á kaffi og vöfflur auk bakkelsis frá Fellabakaríi í tilefni dagsins. Þeir Gunnlaugur óg Ágúst Bogasynir leggja til húsnæðið. Golfáhugafólk tekur þessari glæsilegu aðstöðu vísast fagnandi nú þegar harðskafi liggur yfir útivöllunum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg vill benda fólki á að ferðast ekki um hálendið á vanbúnum bílum en nokkuð hefur borið á því undanfarið. Þó að GSM samband sé stöðugt að batna á hálendinu er enn langt frá því að samband sé alls staðar.
Þorrinn var veittur í fimmtánda sinn á Egilsstaðaþorrablóti seint í janúar. Að þessu sinni fór hann til hjónanna Gunnhildar Ingvarsdóttur og Þráins Skarphéðinssonar fyrir að viðhalda þjóðdansahefð Íslendinga.
Háskólasetrið á Höfn og Þórbergssetur bjóða öllum Hornfirðingum og íbúum nærsveita að taka þátt í opnu námskeiði þar sem fjallað verður um Þórberg Þórðarson, ævi hans og verk. Námskeiðið verður haldið hálfsmánaðarlega á þriðjudagskvöldum á milli kl. 20 og 22 í Pakkhúsinu á Höfn.