Allar fréttir

Múlaþing komið út

Múlaþing, 35. hefti 2008-9, er komið út. Ritstjórar eru Arndís Þorvaldsdóttir og Jóhann G. Gunnarsson. Arndís hættir nú sem ritstjóri eftir farsæl störf að Múlaþingi síðustu árin. Rannveig Þórhallsdóttir kemur í hennar stað og mun starfa ásamt Jóhanni sem ritstjóri. Að vanda er fjölbreytt efni í ritinu og höfundar fjórtán talsins. Forsíðu Múlaþings prýðir athyglisvert málverk eftir Sigurlaugu Stefánsdóttur.

Páskablað Austurgluggans komið út

Austurglugginn er eins og ævinlega hlaðinn forvitnilegu efni. Auk frétta og páskatengds efnis eru í blaðinu viðtöl við eigendur nokkurra dýrindis hunda og umfjöllun um Hundaklúbb Austurlands. Ár stjörnufræðinnar er kynnt og fjallað um stjörnuathuganir á Íslandi frá öndverðu. Aðsendar greinar fjalla, ekki alls óvænt, um stjórnmál og uppskriftir matgæðings vikunnar eru afar kræsilegar. Síðast, en ekki síst, er brýning til frambjóðenda til Alþingiskosninga um að huga betur að Austurlandi. Austurglugginn fæst á betri blaðsölustöðum fjórðungsins.

agl_kominn_t_2.jpg

 

Farið með gát á vélsleðum

Flest vélsleðaslys undanfarinna ára má rekja til þess að of hratt var ekið miðað við aðstæður. Mjög oft er erfitt að greina misfellur, hæðir og hóla frá öðru þar sem snjórinn framan við sleðann jafnar oft þessa hluti út, að því er segir í tilkynningu frá Forvarnarhúsi.

snowmobil20200720008.jpg

Lesa meira

Fjölskyldur í landinu og lánasjóðir taki saman á vanda heimila

Gunnar Þór Sigbjörnsson skrifar:           Í dag eru mikið eignabál í gangi á eignum landsmanna og er fólk að sjá eignarhlut sinn hverfa vegna okurvaxta og verðbólgubáls. Það liggur fyrir að ef ekkert verður að gert er mikil hætta á því að fólk gefist  upp og hætti að borga og munu þá lánastofnanir sem eiga þessi lán verða af miklu fjárstreymi vegna þessa og eignast hús í bunkum sem er raunveruleg ógn við alla.

brennandi_hs.jpg

Lesa meira

Tap hjá Alcoa

Alcoa hefur skýrt frá því að tap fyrirtækisins á fyrsta fjórðungi ársins hafi numið 497 milljónum dollara, jafnvirði rúmlega 62 milljarða íslenskra króna. Fyrirtækið hefur verið rekið með tapi í tvo ársfjórðunga í röð vegna minnkandi eftirspurnar og lækkandi álverðs. Talið er að álbirgðir heimsins nemi fjögur- til fimmfaldri árlegri álframleiðslu alls á Íslandi. Þær eru taldar vera á milli 3,5 til 5 milljónir tonna.

487019a.jpg

Lesa meira

Fyrsta umhverfisvottaða byggingin á Íslandi

Framkvæmdasýsla ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri, en hún verður fyrsta byggingin hér á landi sem verður byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. Útboðið er unnið samkvæmt nýsamþykktri stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup. Skóflustunga verður tekin að byggingunni 16. apríl að viðstöddum umhverfisráðherra og föruneyti.

skriduklaustur1vefur.jpg 

Lesa meira

Sýning í Breiðdalssetri

Sýningin Fortíðar flögur opnar í Breiðdalssetri í Gamla kaupfélagshúsinu á Breiðdalsvík kl. 18 í dag. Verkin eru afrakstur fyrstu gestavinnustofu Breiðdalsseturs. Guðrún Sigríður Haraldsdóttir sýnir ný myndverk unnin upp úr ljósmyndaalbúmi dr. Stefáns Einarssonar frá Höskuldsstöðum, Breiðdal. fortarflgur.jpg

Lesa meira

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.