Austurglugginn notaði tímann um jólin til að taka til eins og fleiri. Tekið var til í myndasöfnum blaðsins frá seinasta sumri og þeim komið á vefinn. Fleiri myndasöfn eiga enn eftir að bætast við en eftirfarandi söfn eru nýkomin inn:
Myndir Austurgluggans frá Ormsteiti 2008 eru komnar inn í myndasafn vefsins. Við vorum á opnunarhátíðinni, Hallormsstaðardegi, kvöldvökunni og Fljótsdalsdegi. Sjá má myndasöfnin með að smella hér .
Bilun í Kárahnjúkavirkjun um miðnæturleytið orsakaði að rafmagn fór í nokkra stund af álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði í nótt. Að sögn vaktmanns hjá RARIK fór rafmagn einnig af á Djúpavogi og Breiðdal í stuttan tíma. Fljótlega tókst því að koma rafmagni á aftur.
Úrslit liggja fyrir í vali lesenda vefsins á Austfirðingi ársins 2008. Það er skemmst frá því að segja að Einar Bragi Bragason, tónlistarmaður og skólastjóri Tónlistarskólans á Seyðisfirði, hlaut flest atkvæði.
Aðrir sem komu sterkir inn voru Matthildur Matthíasdóttir og foreldrar hennar í Neskaupstað fyrir aðdáunarvert æðruleysi og dugnað í erfiðum veikindum Matthildar, Ólafur Kristinn Kristínarson, fyrir óbilandi drifkraft í málefnum utandeildarknattspyrnu á Austurlandi, Jón Hilmar Kárason, tónlistarmógúll í Neskaupstað og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs starfsgreinafélags á Austurlandi, fyrir störf sín að verkalýðsmálum.
Laufey Frímannsdóttir og Sindri Freyr Jónsson sigruðu í Fjórðungsglímu
Austurlands, þar sem keppt var um Aðalsteinsbikarinn, sem fram fór á
Reyðarfirði milli jóla og nýárs. Laufey var nýverið valin efnilegasta
glímukona landsins og íþróttamaður Vals árið 2008.
Eitt sveitarfélag í landinu hyggst lækka útsvarshlutfall frá því sem var í fyrra. Það er Fljótsdalshreppur, sem lækkar úr 13,03% í 12%. Fimmtíu og átta sveitarfélög hækka útsvarshlutfallið.