Allar fréttir
Rafmagnsleysi á nýársnótt
Bilun í Kárahnjúkavirkjun um miðnæturleytið orsakaði að rafmagn fór í nokkra stund af álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði í nótt. Að sögn vaktmanns hjá RARIK fór rafmagn einnig af á Djúpavogi og Breiðdal í stuttan tíma. Fljótlega tókst því að koma rafmagni á aftur.
Opinn fundur um hafrannsóknir í dag
Síldarvinnslan hf. og Hafrannsóknarstofnun standa fyrir opnum fundi um rannsóknir á uppsjávarfiskum í Egilsbúð, Neskaupstað í dag kl. 14:00.
Einar Bragi Bragason er Austfirðingur ársins 2008
Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur!
Úrslit liggja fyrir í vali lesenda vefsins á Austfirðingi ársins 2008. Það er skemmst frá því að segja að Einar Bragi Bragason, tónlistarmaður og skólastjóri Tónlistarskólans á Seyðisfirði, hlaut flest atkvæði.
Aðrir sem komu sterkir inn voru Matthildur Matthíasdóttir og foreldrar hennar í Neskaupstað fyrir aðdáunarvert æðruleysi og dugnað í erfiðum veikindum Matthildar, Ólafur Kristinn Kristínarson, fyrir óbilandi drifkraft í málefnum utandeildarknattspyrnu á Austurlandi, Jón Hilmar Kárason, tónlistarmógúll í Neskaupstað og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs starfsgreinafélags á Austurlandi, fyrir störf sín að verkalýðsmálum.
Farið varlega með flugeldana!
Nú eru áramótin að nálgast og því miður fylgja þeim alltaf flugeldaslys. Ólöf Snæhólm, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir tölfræði sýna að dagana fyrir og eftir áramót séu drengir í mestri hættu þegar kemur að flugeldaslysum. Flest verði þau þegar teknir eru í sundur flugeldar og gerðir úr þeim sprengjur sem valda alvarlegustu slysunum; jafnvel örkumlun.
Fljótsdalshreppur lækkar eitt sveitarfélaga útsvarshlutfall
Eitt sveitarfélag í landinu hyggst lækka útsvarshlutfall frá því sem var í fyrra. Það er Fljótsdalshreppur, sem lækkar úr 13,03% í 12%. Fimmtíu og átta sveitarfélög hækka útsvarshlutfallið.
Læknum á Austurlandi sagt upp og endurráðið með breyttu vaktfyrirkomulagi
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) er nú að senda út uppsagnarbréf til allra lækna stofnunarinnar og taka þær gildi um áramót.Einar Rafn Haraldsson, forstjóri HSA, segir að fyrirhugaðar séu uppsagnir ráðningarsamninga við lækna stofnunarinnar vegna þess að gera eigi breytingar á vaktafyrirkomulagi.