Fín aðsókn fyrstu opnunarhelgina í Oddsskarði
Nægur snjór er komin í fjöll og skíðastarfið að hefjast eftir sumarfríið. Fyrsta opnunarhelgin í Oddsskarði í vetur var um helgina.„Snjóalög eru fín eins og er en við viljum alltaf meira," segir Dagfinnur Ómarsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Oddsskarði.
Hann segir skíðasvæðið yfirleitt opna fyrri part nóvembermánaðar. Í byrjun mánaðarins sé nægur snjór fallinn og hægt að gera klárt til að opna.
Hann segir aðsóknina um helgina hafa verið góða. „Það verður vonandi rífandi kraftur og gleði í vetur."
Opið er á milli klukkan 16-19 virka daga í fyrstu lyftu.
Hressir skíðakrakkar í Oddsskarði um helgina. Mynd: Dagfinnur S. Ómarsson