Öruggir sigrar í blakinu: Borgar sig varla að fara suður fyrir bara sex hrinur

blak throttur hk okt13 kk 0016 webKarlalið Þróttar gerði góða ferð til Reykjavíkur um helgina og vann Þrótt Reykjavík tvisvar 0-3. Þjálfari liðsins segist ánægður með leiki helgarinnar. Norðfjarðarliðið hafði góð tök á Reykjavíkurliðinu í báðum leikjunum.

Fyrri leikurinn var á föstudagskvöld og þann leik vann Þróttur 22-25, 23-25 og 18-25. Valgeir Valgeirsson var þar stigahæstur með 14 stig en þjálfarinn Hlöðver Hlöðversson skoraði tíu.

„Við mættum vel stemmdir í leikinn á föstudagskvöldinu. Við gerðum andstæðingum okkar erfitt fyrir með þéttum uppgjöfum og ágætis sóknarleik úr öllum stöðum og fínum varnarleik og blokkum," sagði Hlöðver í samtali við Austurfrétt eftir helgina.

„Við höfðum yfirhöndina allan tímann nema um miðbik annarrar hrinu þegar Reykjavíkurliðið seig fram úr. Því var kippt hið snarasta í liðinn."

Liðin mættust aftur í hádeginu á laugardag. Þróttur þjarmaði þá enn frekar að Reykjavíkurliðinu og vann 14-25, 15-25 og 17-25. Valgeir var aftur stigahæstur með fjórtán sig en Matthías Haraldsson átti mjög góðan dag, einkum í vörninni.

„Við vorum enn fastari fyrir og löguðum það sem betur mátti fara. Við unnum vel saman allan leikinn og það mátti heyra að hjörtun slógu í einum takt og þegar Reykjavíkurliðið saxaði á forskotið var öllu skellt í lás.

Eftir þessa tvo góðu útisigra ræddum við í liðinu að það tæki því varla að fara svona suður og spila „bara" sex hrinur."

Þróttur er í þriðja sæti Mikasa-deildar karla með 24 stig eftir 12 leiki, tveimur stigum á eftir Stjörnunni sem er í öðru sæti og sex frá HK sem er efst.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar